LÍFRÆNT KREM- APPELSÍNU LAVANDER

Nærir og mýkir húðina með hágæða innihaldsefnum. Lífræn jojoba olía græðir og róar, lífræn kókosolía gefur raka, lífrænar hemp og lárperuolíur mýkja og næra. Hentar flestum húðgerðum; viðkvæmri-, þurri-, grófri- eða blandaðri húð. Við notum bara lífrænar ilmkjarnaolíur til að gefa ilminn svo andaðu djúpt að þér!
Notkun
Kremin eru mild og má nota jafnt á hendur, andlit og líkama. Þau eru mjög drjúg og dreifast vel svo við mælum með að byrja með lítið magn í einu. Sniðugt er að geyma hana við vaskinn og bera alltaf smá á hendurnar eftir handþvott eða strax eftir sturtu eða bað, áður en húðin þornar. Kremið smýgur hratt inn í húðina og þú þarft ótrúlega lítið til að þekja allan líkamann. Nærir og mýkir á náttúrulegan hátt. Nuddaðu hægt og þétt inn í húðina, í átt að hjartanu. Slakaðu á og andaðu djúpt! Heilsan er ríkidæmi!
Innihald
Vatn, lífræn kókosolía, lífræn jojobaolía, lífrænt ethyl alcohol, lífræn lárperuolía, lífræn límónuolía, lífræn appelsínuolía, lífræn hempfræjaolía, lífrænt quillaja Saponaria extract, xanthan gum, tókóferól.Fair trade vottuð innihaldsefni